Forsíða

Líftryggingar

Lækningatryggingar Meinatrygginar

Sjúkra- og slysatryggingar

Starfstrygging Hagals

Miðlarar

 

 

Um Hagal

Árni Reynisson hóf tryggingaþjónustu árið 1991 þegar hann bauð útflutningsfyrirtækjum tryggingu gegn greiðsluvá ásamt annarri þjónustu við utanríkisverslun. Tryggjandi var félagið AC Namur í Belgíu sem eftir eigendaskipti heitir Atradius.

Árið 1993 var ákveðið að bjóða fleiri tryggingagreinar. Breska sendiráðið og AFI, samband breskra tryggingafélaga greiddu fyrir samböndum við líftryggingafélög. Friends Provident sýndu mestan áhuga.

Ný lög um vátryggingar sem lögleiddu miðlun á tryggingamarkaði gengu í gildi 1994. Árni Reynisson tók virkan þátt í undirbúningi þeirra með aðstoð FP, í fjölmiðlum og með sambandi við þingmenn.

Árni Reynisson fékk réttindi sem löggiltur vátryggingamiðlari vorið 1995. Hagall, vöru- og þjónustumerki miðlunarinnar var skrásett sama ár.

Árni var fyrstur til að bjóða samtengdar líf- örorku- og sparnaðartryggingar. frá Friends Provident. Tilkoma þeirra trygginga var undanfari rækilegrar uppstokkunar í lífeyrismálum.

Önnur nýjung var meinatryggingin (sjúkdómatryggingin) sem ekki hafði áður þekkst hérlendis.

Árið 1998 kom á markað starfstengd sjúkra- og slysatrygging á áður óþekktu verði, frá Lloyd´s miðluninni Europea. Hún vakti strax verðskuldaða athygli.

Árið 2000 var tryggingin færð á íslenskt mál og í íslenska krónu. Hún var sett á markað og miðlurum boðið að bjóða hana. Hún heitir síðan Starfstrygging.

Hlutafélagið Árni Reynisson ehf. var stofnað í árslok 2000.

AON, ein stærsta tryggingamiðlun heims kom til samstarfs um Starfstrygginguna og önnur viðskipti á Lloyd´s árið 2003. Frá 1. september 2006 hefur WILLIS tekið við þessu hlutverki.

Á sama ári komu Lækningatryggingar til sögunnar.

Þriðja kynslóð Starfstryggingar kom út í ársbyrjun 2005. Hún heitir nú Starfstrygging Hagals. Íslensk lög gilda nú um trygginguna. Skírteini eru undirrituð hérlendis. Stefnt er að miklu hagræði í afgreiðslu bóta. Þessi heimasíða er til hagræðis fyrir þá sem vilja kynna sér nánar tryggingar í nafni Hagals með 24/7 aðgangi að eyðublöðum, skilmálum og upplýsingum.

Lloyd´s markaðurinn

Lloyd´s er helsti tryggingamarkaður heims sem sinnir hverskonar sérverkefnum þar sem saman kemur fjöldi sérhæfðra áhættutaka og á sér engan líka að því leyti. Lloyd´s er ekki tryggingafélag, heldur samband meðlima (members) sem bæði eru einstaklingar og lögaðilar. Þeir leggja fjármuni í áhættusjóði (bótasjóði) og fela sérhæfðum mönnum að skuldbinda tryggingasamninga í krafti þeirra. Um 50 umboðsstofur eru starfræktar víða um heim. Á Lloyd´s markaðnum starfa tryggingafélög sem nefnast „syndicates“ á vegum áhættutakanna og eru þau nú um 80 að tölu. Meðlimir á Lloyd‘s eru ýmist einstaklingar eða félög (persónur að lögum) sem samþykkja og ganga að tryggingaviðskiptum sem skila hagnaði eða tapi eftir atvikum. Einstaklingar leggja gjarnan fé til fleiri en eins „syndikati“ en félög vinna frekar með einu slíku. Ábyrgð þeirra er ekki sameiginleg eða gagnkvæm. Hvert „syndikat“ hefur sína framkvæmdastjórn. Þau geta sérhæft sig á ýmsum sviðum svo sem sjó- eða flugtryggingum, ábyrgðartryggingum, bifreiðatryggingum og líf- og heilsutryggingum. Tryggingalausnir eru sérhannaðar eftir þörfum viðkomandi markaðar eða tryggingastofns. Lloyd´s miðlarar færa viðskiptin inn á markaðinn. Umsækendur trygginganna eru beinir viðskiptavinir þeirra eða skjóstæðingar miðlara um heim allan. Samanlögð viðskipti „syndikatanna“ á Lloyd´s mynda eina stærstu viðskiptaheild veraldar á sviði trygginga. Eftirtalin „syndiköt“ hafa þjónað íslenska markaðnum undanfarin ár:

1998-2002 Monument v. Europea

2003-2005 Equity Red Star

2006-2008 Atrium

2009- Liberty

Heimilsfang skrifstofu Liberty og Lloyds í London:

Liberty Syndicates, London

5th Floor

Plantation Place South

Great Tower Street

London, EC3R 5AZ

T: +44 (0)20 7070 4472

F: +44 (0)20 7863 1001

Lloyd's

One Lime Street

London, EC3M 7HA

T: +44 (0)20 7327 1000

F: +44 (0)20 7626 2389

Syndicate No: 4472

CEO: Nick Metcalf

Þessar upplýsingar má einnig finna á vefsíðu Liberty, http://www.libertysyndicates.com

 

 

 

 

 

 

 

© Allur réttur áskilinn 2003  

 Hagall - Árni Reynisson ehf

Laugavegi 170

105 Reykjavík

Sími: 55 11 11 0

Fax: 55 11 123

Netfang: hagall@hagall.is